hversu vel þekkiru okkur?
lagið hennar sylvíu nótt!
27.06.2007 09:36:24 / Brynja

don´t nenn it

jæja er ekki löngu kominn tími á að hætta þessu rugli... þið bara hringið ef þið viljið vita hvað ég er að gera :D

 

 

 

 

HÆTT Í BILI ALLAVEGA


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 20:32:45 / Brynja

muhahhaha

tékkið á þessu, ...  eitthvað með paris klikkar seint.

http://www.youtube.com/watch?v=k66epna2Sss

og þessi kom svo sannarlega á óvart.. 8| krúttið!

http://www.kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=&id=3575

og þeir sem vilja skoða fallega fagrahvamminn minn i síðasta sinn áður en hann verður seldur.. here u go..:cry:

http://remax.is/leitarnidurstada/?stage_module_id=2794&stage=1&request=1&street=fagrihvammur&description=&size_from=&size_to=&price_from=&price_to=&rooms_from=&rooms_to=&search=Leita


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 09:12:36 / Brynja

sumarið...

er einhver búinn að plana þetta sumar?

það virðast allir vera að fara í hallgeirsey eða hvað þetta nú heitir fyrstu helgina i júlí.. er það máið eða ertu með betri hugmynd?

svo er ég nú að láta mig dreyma um new york um verslunarmannahelgina áður er lærdómurinn hefst aftur;)

En helgin var fín. við fórum i afmæli pg útskriftarveislu til Ara vinar hans Axels um helgina þar sem var mega stuð. góður matur og skemmtilegt fólk sem maður hittir náttla alltof sjaldan eins og alla aðra8| 

planið var´nú að fara á salsa kvöld en það varð nú ekki mikið úr því .. ég sem var búin að plata allt partýið með mér. og alliir strákarnir búnir að bjóðast til að koma að æfa dans með mér .. nema þessi eini sem ég er búin að suða í  í langan tíma en ekkert gerist :cry:

á sunnudaginn vaknaði ég svo eitur hress og skellti í nokkrar kökur og gúmmelaði og Þóra, Einar, Dolli og Árni Már kíktu í hressingu.. sumir þynnri en aðrir:D

en jæja farin að þykjast vinna eitthvað hérna

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 00:38:39 / Brynja

sumarfríið

ég er búin að vera í sumarfríi þessa vikuna... og reyndar hinar 3 vikurnar a undan þar sem við þóra vorum ekkert  úber aktívar í 3ja vikna áfanganum hehe en ég byrja að vinna sem þjónustufulltrúi i landsbankanum á mánudaginn.. þannig að ef að þig vantar að láta kippa yfirdrættinum i lag´þá bara renniru við hjá mér :D

 ég fór á skóga í gær í tökur á auglýsingu fyrir heimssýninguna... hmm. veit ekki alveg hvað málið er með það dæmi en allavega það átti að taka um 2 tima að keyra 1 klukkutíma í að gera reddí og svo taka í klukkutíma og svo bruna heim en þetta tók tíu tíma.. sem betur fór vorum við seli á sér bíl og gátum stytt okkur stundir með því að keyra á vík og eitthvað. við stóðum upp við skógarfoss..og vindurinn alltaf jafn hress her á landi.. þannig að við vorum vel blaut :haha:

 

svo  var ég bara að koma heim.. við kiktum út að borða á la prima vera í boði tengdo og svo á að fara að versla á morgun  þannig að ég er að spá í að fara að sofa svo ég kaupi nú ekki eitthvað bull

nighty night;)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 20:47:21 / Brynja

hvítasunnudagur eða hvítasunnu sunnudagur?

já mar veit ekki...

en stelpur þið hljótið að kannast við þetta.. mar kemur heim úr verslunarferð rosa ánægður og fera að taka uppúr pokanum og sýna kallinum ... og þá heyrist... bíddu áttu ekki svona? eða þegar mamma sagði bíddu ég átti einu sinni sona alveg eins... og hljóp svo niðrí geymslu að gramsa... gott fólk þetta er aldrei eins..og við kaupum okkur aldrei sömu fötin tvisvar. 8) annars fór helgin í próf og að horfa á ungfru island... og ég verð nú að segja að mér fannst Jóhanna Vala eiga þennan titil vel skilið.. mér heyrist ekki allir vera á því en that´s life;)

 það er nú ekki búið að gera mikið annað þessa helgina... en ég held að það sé að fara að rætast úr því... Þóra og Einar eru held ég á leiðinni með eitthvað buzz....hvað sem það nú er:) hehe

wish me luck.. ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 15:06:09 / Brynja

helgin og miðvikudagurinn

Það var tjútað á miðvikudaginn.. við Þóra kíktum í bekkjarpartý.. rosa stuð og svo var kíkt á vegamót. jesús kristur og móses og allir hvað er málið.. það er pláss fyrir svona 10 manns þarna inni en ég get svarið það að þarna voru svona 1000 .. ji dúdda mía.. ekki að gera góða hluti. 8) En þegar við loksins fundum okkur sæti... þá fréttum við að josh groban væri niðri og ég og þóra þutum náttla niður eins og verstu grúppíur... og hann náttla bað um að fá mynd af sé með okkur hehehe je ræt. en við fengum myndina og hypjuðum okkur svo heim.

Á laugardaginn var svo vaknað snemma því að stóri dagurinn var kominn. the loves of my life voru að útskrifast. Fyst fórum við í útskriftina hjá Líneyju og úff ég var að sofna.. þegar nýstúdentinn tók við ræðistólnum og hélt líka þessa ógeðslega skemmtilegu og flottu ræðu... svo var brunað beint í borgó þar sem 150 manns voru að útskrifast.. .ég var án gríns að leka niður... og þeim sem datt í hug að koma með börnin sín á þetta. what were u thinking... ?? þau voru útum öll gólf farin að sleikja gólfið og búin að klæða sig úr og ég veit ekki hvað.. belive me ef ég hefði getað farið að grenja án þess að fólk myndi stara þá hefði ég gert það... en ég er sko heví stolt af lömbunum mínum. Um kvöldið var svo svaka veisla.. mikið af ræðum og maður átti erfitt með að halda aftur af tárunum. .

Svo var partý í gamla fagrahvamminum... langt fram á kvöld.. sing star og gitar hero voru í fyrsta sæti .. hehe Við Þóra , Axel og Dolli urðum svo eftir og tókum til :) takk fyrir hjálpina gott fólk þið eruð æði ;)

 en Axel minn og Líney mín innilega til hamingju með daginn aftur :)

tékk át the pics.. frá sveitinni og frá bekkjarpartyinu:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 13:07:02 / Brynja

sorry smá blogg á macann..

já þið verðið að afsaka að bloggið sem ég blogga á macann verður alltaf soldið spes.. en það verður að hafa það. Við í verkfræðinni kláruðum loksins þriggja vikna áfangann í gær.. ég veit nú ekki alveg hvernig það próf fór... ég meina ég er ekki að skilja hvernig maður á að læra forritun á 3 vikum !! En thank god fyrir endurtekt :) ég og Axel fórum í 5ta mótuhjólatímann okkar í gær.. við skulum vona að tengdó sé ekki að lesa þetta.. því sumir eru ekki búnir að mana sig uppí að segja þeim að einkasonurinn sé að læra á tryllitæki hehe. En það gekk bara rosalega vel.. við fórum í fyrsta sinn út að hjóla,, og ég setti kvikindið í 80 hvorki meira né minna heví stolt... þar sem ég hélt að ég myndi aldrei ALDREI meika þetta. En vá hvað ég er að fíla þetta. .. lifa lífinu .:) en ég missti af josh groban í gær... mig langaði ekkert smá þannig að ef þú fórst þá verðuru að upplýsa mig hvernig var.. Svo er ég ótrúlega stolt af því að litla barnið mitt er að úrskrifast núna á laugardaginn og þá meina ég Líney og reyndar Axel líka hehe .. ekkert smá dugleg.. þannig að mar verður bissí þennan laugardaginn en í kvöld er bekkjarpartý sem við Þóra ætlum deffenitly að mæta í ..þannig að ef einhver verður á tjúttinu endilega vera í bandi adios amigos ;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 18:05:44 / Brynja

SVEITAFERÐIN !!!!

loksins loksins komið að sveitaferðinni. Ég, Axel, Þóra og Sigrún lögðum af stað í sveitina til Andra og co í gær um 3 leitið og tókum þetta með trukki og vorum komin 2 tímum seinna.. Á BLÖNDÓS! sem segir okkur að Axel keyrði 8|  En þegar við mættum byrjuðum við Þóra á því að prófa fjórhjólið sem var á staðnum og náðum kvikindinu uppí 70 8) gellur.. klárlega:)  Svo fórum við að skoða mumu eins og heimafólkið segir ... og tja ég hef bara aldrei fundið aðra eins fýlu!!! mig bókstaflega sveið í nebbann en kálfarnir voru krúttlegir ég verð að viðurkenna það.  Næst var ferðinni heitið í fjárhúsið þar sem við sáum meme og þar voru sko fullt af krílum sem voru bara nýkomin út8| all slimy and shit.., ég náttla þurfti að klappa og halda og kyssa krúttin,,, en þá tók ég eftir að það var eitthvað blautt.. og ég spyr Andra hvað þetta sé... jújú þá var það bara að detta út og þetta var blóð og gums iiijjjúúú ! 8| svo skeit eitt lambið á okkur Þóru.. skýr skilaboð við eigum bara að vera í bænum:D   Eftir þetta þá var grillað þetta líka gæða kjöt.. Elli stóð sig eins og hetja við grillið... og svo var farið og skoðað kirkjuna sem er geggjuð8| ég væri sko til í að gifta mig þarna... nennið þið að keyra?? 

svo verð ég að játa að ég prófaði gítarhero ...en ég var ekki beint að gera góða hluti....  en gaman samt..

 

Eftir þetta þá ákváðum við turtildúfurnar að halda heim á leið...  og bara svona til að rifja upp...´þá vorum við að keyra í fyrra og seli benti mér á vestmannaeyjar... og búmm drápum rollu. Eftir sveitaferðina hélt ég að við hefðum séð nóg af dýrum þann daginn en guð ákvað greinilega annað .. því ég spurði Axel í gær hvað við værum og hann fór að benda á Esjuna og búmm GÆS!! ég náttla í panikki... og hann fer út að leita að dýrinu,, til að snúa það úr hálslið ef greyið væri enn á lífil.. en hann var ekki að finna hana.. svo ákvaðum við að kíkja hvort bíllinn væri í lagi... og þa sáum við að gæsin var pikkföst í grillinu á bílnum!!8| þannig að Axel fór að tosa..... girnó i know... en það hafðist á endanum og svo kom löggan og stoppaði hjá okkur,,, og út stígur hávaxin herramaður... sem reyndist vera hann Beggi æskuvinur minn..., ekkert smá gaman að hitta hann.... þannig að þetta varð bara ævintýri;)  vorum samt að spá hvort við ættum að taka einn laugara með gæsina framan á svona uppá flippið hehe en þetta var æðisleg ferð í alla staði ... og takk enn og aftur fyrir okkur Andri minn .. ég býð næst í BBQ;)

MYNDIR Á LEIÐINNI :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 20:24:56 / Brynja

allt að gerast!!

það er sko búið að vera nóg að gera síðustu daga... við Axel fórum i fyrsta móturhjólatímann okkar á miðvikudaginn... og ég viðurkenni að ég var að deyja úr hræðslu... en allt gekk vel og næsti tími á mánudaginn8) ekkert smá gaman samt.

á fimmtudaginn skelltum við okkur svo með Þóru á línuskauta í nauthólsvikinni... það var nú ekki besta veðrið en það hélst þurrt rétt á meðan.. . en svo kom að því að ég flaug og þá meina ég FLAUG á rassinn... gerðist allt í svona sló mósíon.. þannig að bæði axel og þóra höfðu tíma til að stoppa og snúa sér við til að sjá þetta nú örugglega.. heeh en ég var nu ekki sú eina sem datt;) En það er samt eitthvað marið og sona...

í dag hafði ég svo innilega ekkert að gera að ég ákvað að fá mér hjólatúr..svona þar sem mar er búinn að pumpa í dekkin og sona úr garðabænum og hjólaði í brimborg.. uppá höfða.. ég hefði betur fengið far þangað og hjólað heim ..heldur en öfugt... fokk hvað það var mikill mótvindur.. ég hélt ég myndi kafna a vissum tímapunkti .. en ég er enn á lífi:haha:

á morgun á svo sætasti sæti ammæli ..þannig að það er cakes and pies:haha: til hamingju með daginn Mikael og Karen mín  .. ég trúi ekki að krílið sé að verða 2ja!

jæja ég er farin að grilla BBQ ribs... svona þar sem það er nú laugardagur

góða helgi;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 13:24:55 / Brynja

vó... long time no see

já ég er eila komin með nóg af þessu blogg æði.. en bara svona rétt til að láta vita af mér þá er ég alvarlega að spá í að láta flytja lögheimilið mitt niðrí HR búin að vera alltof mikið þar en loksins eru prófin BUIN!! og ég meiraðsegja búin að fá úr einu :) Annars er nú ekki mikið að frétta páskarnir komu og fóru en ég fékk ekkert páskafrí:( en við héldum samt árlega boðið okkar .. gaman gaman. Ég verð nú samt að segja það að hetjur vikunnar voru slökkviliðskallarnir … við Þóra þutum niðrí bæ til að sjá … og horfuð náttla á slökkviliðsmennina með stjörnur I augunum. ? En jæja ég er farin að gera mig til fyrir barnaafmæli… ? ciao

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 03:14:08 / Brynja

well hellú.

jæja þá er ein helgin enn búin og ekkert nema próf framundan.

Það var svaka partý á föstudaginn í HR þar sem það var kosningavaka og fyrirpartýið byrjaði klukkan 3 8|  en ég lét nú ekki sjá mig alveg strax..en þar var svaka stuð og allir hressir..sumir hressari en aðrir... ég nefni engin nöfn Andri minn.. :haha::haha: :haha:En allavega þá skelltum við Þóra okkur á Broadway á kosingavökuna.. bara svona rétt að láta sjá okkur.

í gær var svo bara rólegasti laugardagur allra tíma ég nennti ekki neinu.. kósý kósý..:haha:En ég Axel og Dolli kíktum á kaffi París um kvöldið.. og þegar við vorum að borga og fara út.. þá koma Arnar Grant og Íval Guðmunds inn .. og biðja um bombu í vodka á barnum en barþjóninn segir að þeir eigi það ekki... .þá bara trompast þeir.. (þeir eru nottla að flytja inn drykkinn) fara bara að tala um að þeir þekki sko eigandann og eitthvað bla bla.. klípa svo í rassinn á 15 ára þjónustustúlkunni og strunsa út!!! HVAÐ ER AÐ? stælar í fólki. Svo var einn gaur þarna sem var greinilega einn .. á kaffi París klukkan 11 á laugardagskvöldi.. æji mig langaði bara að fara að knúsa hann .. en seli var að veðja á að deitið væri á klóinu:$ Eruð þið mikið í að fara ein á kaffihús á laugardagskvöldi?

í dag er ég bara búin að vera niðrí skóla .. læra og ekki læra:$  svo var ég bara rétt að muna áðan að hún Þóra á að vera með fyrirlestur á morgun.. og ég hringdi áðan til að athuga hvort hún myndi það.. en nei nei .. við systurnar erum farnar að hugsa fyrir hvor aðra hehe::haha::haha:

good luck Þóra mín;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 14:28:17 / Brynja

HR ónýtt

 ég,  Þóra og Kolla  kíktum á konukvöld Sólon síðasta föstudag svaka partý... Bjarni töframaður kom og töfraði fyrir okkur og sumir voru duglegri að hella í sig en aðrir ;) Ég tók svo bara letidag á laugardaginn.. enda jólasnjóaði alla helgina.. hvað á mar að gera annað en að vera inni í svona veðri.. sérstaklega þegar einhver heimtaði að setja bílinn á sumardekk um leið og það sást í sól í korter hérna um daginn:$

ég og Þóra sátum uppí lærisal að læra í gær. þegar við heyrðum þetta rosa vatnshljóð og við kíkjum bak við okkur og jújú þá er bara að fossa og þá meina ég fossa úr loftinu á  HR. og þetta var heitt vatn þannig að lyktin var sko ekki góð .. en strákarnir fóru beint í það að koma ljósritunarvélinni frá og svo settum við allar ruslafötur í húsinu undir alla lekana en ekkert dugði. 8| Svo hringdi ég á slökkviliðið og þeir komu..,en ef það hefði verið eldur þá værum við öll dáin.. þeir voru sko ekkert að flýta sér. En svo í dag hitti ég á rektorinn okkar .. og spurði hana hvort það væri sanngjarnt að við sem erum í gamla mogga húsinu værum að borga jafn mikið og þeir sem eru í ofanleiti þar sem húsnæðið er pörfekt? og hvort það væri sanngjarn að hækka skólagjöldin okkar í 130.000!!! fyrir húsnæði sem lekur, ónýtar ljósritunarvélar og allt of litlar stofur... ég veit nú ekki hversu mikið hún var að hlusta ,. en við sjáum til. :haha: en það eru kosningadagar í skólanum þannig að maður er hámandi í sig kökur allan daginn.. :haha: en svo eru bara 2 vikur í próf.. hólí mólí hvað þetta líður hratt8|

hægt að lesa allt um þetta a mbl.
jæja stelpur..þá vitum við hvað kærastarnir okkar eru að gera þegar þeir fara að hitta
strákana:haha::haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 09:22:14 / Brynja

sveitaferð!!

ég og Þóra sitjum hérna í eðlisfræði.. að deyja úr leiðindum.. eða frekar skilningsleysi. 8| Obbobbobb og bara 3 vikur í próf. ekki gott. an djóks þá er gaurinn búinn að skrifa upp 2 metra langa jöfnu og svo bara tegrar mar í gegn með dl!!! ekki málið kallinn minn8|

En helgin var fín .. gerði svosem ekki mikð á föstudaginn.. en Seli bauð mér út að borða á Hereford á laugardagskvöldið rosa nice. ;)

Á sunnudaginn mættum við Þóra svo hressar niðrí skóla.. mest að skoða netið en eitthvað var nú lært:haha: En aðallega var hann Andri "beljustrákur" að hneykslast á okkur  og hvað við kunnum lítið um sveitina.. hann hélt að það væru ekki til svona borgarbörn ennþann dag í dag. .. en jújú við Þóra erum sko til:haha: ég án gríns kúgaðist af öllu kúkatalinu í honum og það var myndasýning úr skíthúsinu ..eða haughúsinu eða hvað þetta heitir!!Þannig að hann er búinn að skipuleggja ferð í sveitina eftir próf þar sem við verðum píndar í hin ýmsu störf... og þurfum að snerta öll kvikindin.:$ En bara svona til að við hljómum ekki alveg jafn ljóshærðar... halda þá ekki fleiri en við að kindurrnar séu að fara uppá götuna til að sleikja salt???

Í kvöld er svo double-date við og Þóra og Einarinn hennar erum að fara á music & lyrics. gaman gaman,


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 19:15:42 / Brynja

árhátíð og svo veikur

Long time no see.!! Ég og Þóra ákváðum að vera með svona til tilbreytingar og skelltum okkur á árshátíð Pragma ( nemendafélagið okkar) í Bláa Lóninu á föstudagskvöldið. Og viti menn þetta var það allra skemmtilegasta tjútt sem ég hef farið á í langan tíma. Þóra stóð sig eins og hetja sem kynnir.. svo vorum við kallaðar tvíburarnir? Hvað  meinar fólk hehe jújú við erum soldið mikið... mikið saman.Mega stuð, góður matur og skemmtilegt fólk. Það fara að koma myndir. :haha: 

 

Laugardagurinn eftir var hins vegar ekki jafn hress...ég búin að ná mér í einhverja flensu .. AFTUR 8|og er búin að vera með 39 stiga hita síðan, ekki gaman.Í þokkabót ætlaði ég að fara að horfa á DVD en nei tækið stóð eitthvað á sér..þannig að ég ákvað að berja bara duglega á það...og nú er það steindautt.kvikindið! Drasl!. ég man hvað það var gaman í minningunni að vera bara veikur heima að chilla .. en nóbb.. ekki málið. En ég er nú að ná þessu úr mér en búin að smita Axel í staðin og O.C er að bjarga okkur hérna. 

Ég fór útí dýrabúð í gær og keypti kattamat nema það að þegar ég kem að afgreiðsluborðinu þá er verið að afgreiða annann mann... svo ég set pokann á borðið og fer að skoða eitthvað annað á meðan. Á meðan ég er að því kemur annar gaur inn... soldið slísí.. og stillir sér fyrir framan borðið þar sem pokinn minn var.. sem væri allt í gúddí ef gaurinn hefði ekki farið að SLEIKJA pokann og naga hann.. eða hvort hann var að stanga úr tönnunum á sér.. og nudda skegginu utan í pokann!!! Iiiiijjjúúú vibbi..8|8| og hvað átti ég að gera? Eee fyrirgefðu.. ertu nokkuð til í að hætta að sleikja pokann minn!!! Ee nei ég held ekki..:$


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 22:44:15 / Brynja

ÓSKARINN:)

Síðasta helgi var bara voða nice. Við ákváðum að vera nú soldið menningarleg og skelltum okkur í leikhús á laugardagskvöldið að sjá Pabbinn sem er sýnt í Iðnó. Ég held án gríns að við höfum hlegið allan tímann.. ekkert smá fyndið og ég mæli sko með þessu leikriti. :haha:

Sunnudagurinn var nú ekki alveg jafn skemmtilegur en við Þóra rúlluðum upp verkefnunum hverju á eftir öðru ógeðslega duglegar.. en svo um kvöldið ákvað ég að það væri komið vor og sendi kallinn út að grilla. :D8) namm namm namm.. ég var sko farin að sakna grillsins.

En þá er það aðal málið..mál málanna!. auðvitað vakti ég og horfði á Oscarinn... ég held að þetta sé 10. árið sem ég geri það.. og var sko ekki að fara að missa af því. ég skal komast á einn svona atburð ..:D hehe en hér eru myndir af þeim sem mér fannst vera flottust.

PENÉLOPE CRUZ photo
Penélope Cruz í kjól frá Versace.


Jennifer Lopes í kjól frá Marchesa.
Cameron í geggjuðum kjól frá Valentino!!
Beyoncé í kjól frá Armani
Portia de Rossi
Portia De Rossi í kjól frá Zac Posen.
The Smiths
Svo þau náttla alltaf perfekt. krílið æði í The pursuit of happiness.
svo eru hér... kjólarnir sem mér fannst soldið spes..eða bara ljótir. :$

NICOLE KIDMAN: YOU DECIDE photo
Nicole Kidman er í kjól frá Balenciaga... hann er flottur en slaufan er ekki alveg málið .. en hún pullar þetta samt ágætlega að mínu mati því hún er svo hávaxin og flott.


Gweneth Paltrow í kjól frá Zac Posen.
Anne Hathaway
Anne Hataway í kjól frá Valentino. soldið spes.
Kirsten Dunst
Kirsten Dunst. í kjól frá Chanel. ég verð bara að segja það að þetta er ljótasti kjóll kvöldsins. Horrible. !!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13